Fréttir
77 bjarkir hafa verið gróðursettar í lundinum til minningar um fórnarlömb voðaverkanna í Ósló og Útey 22. júlí 2011. Lundurinn er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Norræna félgsins, Norræna hússins, Háskólans, Landmótunar sf og bókaútgáfunnar Draumsýnar.
Framkvæmdir ganga vel við nýja félagsmiðstöð í Spöng í Grafarvogi, en þar verður kirkja, félagsstarf Korpúlfa og dagdeild eldri borgara. Við stjórnun framkvæmda félagsmiðstöðvarinnar er notað reiknilíkan vegna líftímakostnaðar mannvirkja.
Anna María Pétursdóttir hefur verið ráðin starfsmannastjóri Reykjavíkurborgar. Hún er með víðtæka menntun, hefur lokið kennaranámi og er með meistaragráður í vinnusálfræði og fjármálum.
Framkvæmdir í miðborginni voru kynntar í gær á opnum fundi og var þar almenn ánægja meðal fundargesta fyrirhugaðar endurbætur. Borgarstjóri sagði mikilvægt að Reykjavíkurborg og rekstraraðilar stæðu saman um að senda skýr boð um að miðborgin væri opin og aðgengileg.
Kvennaathvarfið er vel að mannréttindaverðlaunum Reykjavíkur komið enda hefur það í 30 ár unnið ötult starf í baráttu gegn ofbeldi og komið konum og börnum þeirra til hjálpar í neyð.