Fréttir
Reykjavíkurborg helgar, í samráði við hagsmunasamtök kaupmanna, nokkrar götur gangandi og hjólandi vegfarendum. Borgarbúar eru hvattir til þess að njóta veglegrar dagskrár sem boðið er upp á í miðborginni.
Aska frá svæðinu í kringum Eyjafjallajökul berst um þessar mundir yfir höfuðborgarsvæðið en hvöss suðaustlæg átt er ríkjandi á Suðurlandi. Gildi svifryks hafa hækkað hratt síðustu klukkustundir og er líklegt að hálftímagildi geti verið yfir mörkum af og til.
Suðurgata verður einstefnugata fyrir akandi umferð til suðurs frá Kirkjugarðsstíg að Skothúsvegi en tvístefnugata fyrir hjólandi umferð. Þetta var samþykkti í umhverfis- og samgönguráði í vikunni. „Við vonum að þessi breyting bæti aðstæður fyrir gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur,“ segir Karl Sigurðsson formaður ráðsins og að einnig muni um leið draga úr umferðarhraða og hávaða.
Skemmtilegt mannlíf í HafnarstrætiVanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur – humusVanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur – innihaldsefni úr sesamfræjum
Skoða fleiri fréttir