Litagleði í Austurstræti
29.07.2010
Allskyns litskrúðugir munir hafa undanfarið dúkkað upp í Austurstrætinu eins og vegfarendur þar hafa margir tekið eftir. Það eru sex nemar í arkitektúr frá Listaháskóla Íslands sem eiga heiðurinn af verkunum en saman kalla þeir sig Betristofu borgarinnar. Hópurinn fékk í sumar styrk úr sjóðnum „Vertu með í að skapa betri borg“ og hefur meðal annars látið að sér kveða á Óðinstorgi og á Hátíð hafsins.
Frá því að Austurstræti, Pósthússtræti og hluti Hafnarstrætis voru helguð gangandi og hjólandi vegfarendum hefur Betristofan hins vegar að mestu haldið sig á þeim slóðum. Liðsmenn hennar byrjuðu á því að búa til nýjan miðpunkt, gulan að lit, til að undirstrika að gatan væri nú ætluð gangandi fólki. „Við vildum bjóða fólki sæti á götunni“ segir Hlynur Axelsson, en á miðpunktinum var að finna fagurgult borð og stóla. Meðlimir Betristofunnar segja gula litinn hafa orðið fyrir valinu þar sem mikill skuggi sé í götunni og því hafi þeim þótt tilvalið að lífga upp á hana með skærum litum.
Hópurinn hefur að undanförnu veitt því athygli að jafnvel þótt Austurstrætið sé nú göngugata virðast margir enn halda sig á gangstéttinni af gömlum vana. „Það eru helst ferðamennirnir sem nýta alla götuna“ segir Laufey Jakobsdóttir. Með nýjustu verkum sínum vill Betristofan því reyna að afmá skilin á milli gangstéttar og umferðargötu og stuðla að því að gangandi og hjólandi vegfarendur leggi óhræddir undir sig alla götuna.
Liðsmenn Betristofunnar hafa fengið góð viðbrögð við gjörningum sínum og vöktu til dæmis óskipta athygli ferðamanna þegar þeir lögðu lokahönd á eitt verka sinna í gær. Þá var mikil ánægja með það þegar Betristofan tyrfði yfir 15 bílastæði á Óðinstorgi fyrr í sumar. „Íbúar í nágrenninu vildu hafa þetta sem lengst“ segir Axel Kaaber og undir það tekur Birkir Ingibjartsson, sem segir að torgið hafi því fengið að standa fimm dögum lengur en upphaflega var áætlað.
Betristofan hyggst ljúka starfinu í sumar með uppákomu á Menningarnótt, þann 21. ágúst. Til viðbótar við þau Hlyn, Axel, Birki og Laufeyju skipa þær Hrafnhildur Magnúsdóttir og Helga Björg Kerúlf einnig Betristofu borgarinnar.
Tenglar:
Heimasíða Betristofunnar
Betristofan á Facebook
Ljósmynd í góðri netlausn