Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Tímabundið leyfi til götu- og torgsölu

29.07.2010

Ákveðið hefur verið að veita tímabundið leyfi til götu- og torgsölu í Reykjavík en borgaryfirvöld hyggjast fara yfir þær reglur sem eru fyrirliggjandi varðandi leyfisveitingar ásamt því að móta stefnu til framtíðar. Stefnt er að því að ljúka þeirri vinnu fyrir lok septembermánaðar.

„Það er ekki rétt sem komið hefur fram í fjölmiðlum að nýr meirihluti hafi þegar mótað stefnu um götu- og torgsölu. Við viljum fara vel yfir þessi mál, og finna varanlega staðsetningu sem hentar söluaðilum jafnt og borgarbúum“ segir Einar Örn Benediktsson formaður menningar- og ferðamálaráðs.

Höfuðborgarstofa sér um leyfisveitingar fyrir götu- og torgsölu í Reykjavík.  Í skoðun hefur verið að nýta betur svokallaðan Hljómalindareit en þar hafa borgaryfirvöld sett upp aðstöðu fyrir söluvagna, meðal annars aðgengi að rafmagni. Aðrir staðir í miðborginni verða einnig skoðaðir og horft verður til reynslu annarra þjóða við mótun stefnunnar.