Þriðjudagsganga 3. ágúst – Listaverkin í Viðey
30.07.2010
Í Viðey er að finna listaverk eftir tvo heimskunna listamenn, Áfanga eftir Richard Serra (f. 1939) og Friðarsúluna eftir Yoko Ono (f. 1933). Bæði verkin eru gjafir listamannanna til íslensku þjóðarinnar. Þriðjudaginn 3. ágúst verður listfræðingurinn Heiðar Kári Rannversson með leiðsögn um Viðey þar sem hann segir frá verkunum.
Heiðar Kári útskrifaðist með BA gráðu í listfræði frá Háskóla Íslands vorið 2009 en lokaverkefni hans fjallaði um listaverkin í Viðey. Í leiðsögn sinni skoðar Heiðar Kári tengsl verkanna við umhverfið og áhorfendur.
Þann 9. október 2007 var friðarljósið í listaverkinu IMAGINE PEACE TOWER eða Friðarsúlunni tendrað. Verkið er tileinkað minningu John Lennons sem hefði þá orðið 67 ára gamall. Á hverju ári lýsir Friðarsúlan frá fæðingardegi Lennons til 8. desember sem er dánardagur hans. Einnig er kveikt á Friðarsúlunni á vetrarsólstöðum, á gamlársdag og á jafndægri að vori.
Í tengslum við Listahátíð 1990 var listaverkið Áfangar eftir bandaríska myndhöggvarann Richard Serra reist á vesturhluta Viðeyjar. Verkið samanstendur af níu súlnapörum úr stuðlabergi sem ramma inn nærliggjandi kennileiti eða áfangastaði. Serra er einn áhrifamesti myndhöggvari samtímans og er verkið gjöf hans til íslensku þjóðarinnar.
Þetta er næst síðasta þriðjudagsganga sumarsins og því í síðustu förvöð fyrir þá sem vilja njóta kvöldgöngu um Viðey að bregða sér yfir sundin. Kaffihús Viðeyjarstofu er opið á þriðjudagskvöldum en aðra daga er lokað kl. 17:00. Það er því upplagt að bregða sér til Viðeyjar, fá sér léttan kvöldverð í Viðeyjarstofu, fara í fræðandi göngutúr og fá sér hressingu áður en haldið er heim á leið.
Aukasiglingar eru á þriðjudögum kl.18:15 og 19:15 til Viðeyjar en leiðsögnin hefst kl. 19:30 við Viðeyjarstofu. Gangan tekur um einn og hálfan tíma og siglt er til baka um kl. 22:00.
Ferjutollur er kr. 1.000.- fyrir fullorðna, kr. 500.- fyrir 6-18 ára og frítt fyrir þau yngstu. Leiðsögnin er ókeypis og öllum heimil og allir göngugestir fá Kristal frá Ölgerðinni til að svala þorstanum.