
Mannauðsskrifstofa hefur yfirumsjón með mannauðsmálum Reykjavíkurborgar, hefur forystu um stefnumótun og veitir borgaryfirvöldum ráðgjöf í þeim efnum. Hún hefur umsjón og eftirlit með framkvæmd starfsmannastefnu og veitir stjórnendum ráðgjöf um starfsmannamál. Skrifstofan ber ábyrgð á og hefur eftirlit með framkvæmd kjarasamninga og starfsmats, túlkar kjarasamninga og vinnurétt, og hefur samskipti við stéttarfélög og fræðslusjóði fyrir hönd borgarinnar. Hún annast launaafgreiðslu og frádráttarskil, ber ábyrgð á mannauðsupplýsingakerfi (Oracle) og þróun þess, þar með talið viðveruskráningarkerfinu Vinnustund, fylgist með gerð starfsþróunaráætlana, framkvæmir árlega viðhorfskönnun meðal starfsmanna borgarinnar, stýrir þróun innra vefs, veitir stjórnendafræðslu og vinnur að margs konar þróunarverkefnum. Mannauðsskrifstofa leggur áherslu á góða og stöðuga samvinnu við starfsmannastjóra fagsviða.
Lykilárangursþættir mannauðsmála Reykjavíkurborgar eru:
a ) hæfir og áhugasamir starfsmenn,
b) árangursríkir stjórnunarhættir,
c) hvetjandi og jákvætt starfsumhverfi.
Undir mannauðsskrifstofu heyra tvær deildir - ráðgjafadeild og launadeild.
Mannauðsstjóri Reykjavíkurborgar er Hallur Páll Jónsson. Deildarstjóri ráðgjafadeildar er Árni Ragnar Stefánsson og deildarstjóri launadeildar er Þorbjörg Atladóttir.