Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Málskot og endurupptaka

Ákvarðanir sem borgaryfirvöld taka í skjóli opinbers valds er oft hægt að fá endurskoðaðar, ýmist af borgaryfirvöldum sjálfum eða öðrum stjórnvöldum.

Endurupptaka:
Samkvæmt stjórnsýslulögum á aðili máls rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef ákvörðun í því hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, eða ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin. Telji aðili að framangreindar aðstæður eigi við um mál sitt getur hann því óskað eftir endurupptöku þess og skal slíkum beiðnum beint til borgarráðs. Sjá nánar um endurupptöku mála í 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, m.a. um tímafresti.

Á sumum sviðum verður ákvörðunum skotið til sérstakra nefnda innan stjórnkerfis Reykjavíkurborgar til endurskoðunar:
• Ákvörðunum starfsmanna Velferðarsviðs og þjónustumiðstöðva í einstaklingsmálum verður skotið til áfrýjunarnefndar velferðarráðs til endanlegrar ákvörðunar.
• Innkauparáð skal taka fyrir og afgreiða þær kvartanir og ábendingar, sem ráðinu berast frá bjóðendum eða seljendum vöru, verka og þjónustu, enda heyri málið ekki undir kærunefnd útboðsmála. Kvörtun skal berast innkauparáði skriflega innan fjögurra vikna frá því kvartandi vissi eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem er tilefni kvörtunarinnar.

Kæra:
Á ýmsum þeirra sviða, sem stjórnsýsla sveitarfélaga nær til, hefur löggjafinn sett á fót kærunefndir sem skjóta má til ákvörðunum á viðkomandi sviði. Sem dæmi um slíkar kærunefndir má nefna:
• Kærunefnd útboðsmála, sjá nánar 13. kafla laga um opinber innkaup nr. 94/2001.
• Úrskurðarnefnd félagsþjónustu, sjá nánar 17. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, með síðari breytingum.
• Úrskurðarnefnd samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, sjá nánar 7. kafla laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, með síðari breytingum.
• Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála, sjá nánar 8. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum.
• Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, sjá nánar 5. kafla upplýsingalaga nr. 50/1996, með síðari breytingum.

Stjórnsýsluendurskoðun samgönguráðuneytisins:
Samkvæmt 103. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 verður ýmsum vafaatriðum sem upp kunna að koma við framkvæmd sveitarstjórnarmálefna skotið til úrskurðar samgönguráðuneytisins. Endurskoðun ráðuneytisins snýr að formhlið ákvarðanna sveitarstjórna og getur það ógilt ákvarðanir hafi þær verið haldnar verulegum formgöllum.

Dómstólar:
Ákvarðanir borgaryfirvalda verða bornar undir dómstóla með málshöfðun. Ekki er skilyrði málshöfðunar að framangreindar endurskoðunar- og kæruleiðir hafi verið tæmdar, nema sérstaklega sé kveðið á um það í viðkomandi lögum.

Nánari upplýsingar um leiðir til að fá ákvarðarnir borgaryfirvalda endurskoðaðar veitir skrifstofustjóri borgarstjórnar, Helga Björk Laxdal.