Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu

Fallist var á samþykkt fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu á framhaldsaðalfundi samtakanna 1. mars 2002.

Markmið samtakanna er að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum sveitarfélaganna, efla samstarf þeirra og stuðla að auknum samskiptum og samstarfi sveitarstjórnarmanna, sveitarstjórnarnefnda og starfsmanna sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Stjórn SSH er skipuð framkvæmdastjórum Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kjósarhrepps, Kópavogs, Mosfellsbæjar, Reykjavíkur, Seltjarnarness og sveitarfélagsins Álftaness. Hver sveitarstjórn tilnefnir varamann úr röðum kjörinna sveitarstjórnarmanna. Formaður er kosinn sérstaklega til tveggja ára í senn og skipta aðildarsveitarfélögin með sér formennskunni. Á fundi borgarráðs 1. júlí 2010 var Dagur B. Eggertsson kjörinn varamaður borgarstjóra í stjórninni.

Á aðalfundi skal skipað fulltrúaráð til árs í senn þar sem hver sveitarstjórn tilnefnir tvo fulltrúa úr sínum hópi. Þá sitja formenn skipulagsráða sveitarfélaganna í svæðisskipulagsráði SSH ásamt einum fulltrúa frá minnihluta hverrar sveitarstjórnar. Sveitarstjórn kýs einnig tvo varamenn.
 

Á fundi borgarráðs 5. júlí 2010 voru Björk Vilhelmsdóttir og Hanna Birna Kristjánsdóttir tilnefndar í fulltrúaráð, til vara  Óttarr Proppé og Júlíus Vífill Ingvarsson.

Fulltrúar Reykjavíkurborgar í svæðisskipulagsráði SSH eru Páll Hjaltason og Júlíus Vífill Ingvarsson, til vara Hjálmar Sveinsson og Gísli Marteinn Baldursson.



Skipurit