Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Upplýsingagátt vegna efnahagsástands

Haustið 2008 setti Velferðarsvið Reykjavíkurborgar fram aðgerðaáætlun vegna aðstæðna í efnahagsumhverfi á Íslandi. Hana má sjá hér Aðgerðaráætlun Velferðarsviðs, frá október 2008, (pdf-skjal).

Einnig hafa verið kortlögð úrræði og tilboð um þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur í vanda til þess að tryggja upplýsingamiðlun. Þá kortlagningu, "Þjónusta fyrir einstaklinga og fjölskyldur - kortlagningu úrræða og þjónustutilboða" má lesa í heild sinni á vefsíðu eða á pdf-skjali.

Ýmsa ráðgjöf og aðstoð er hægt að fá á þjónustumiðstöðvum borgarinnar en Velferðarsvið rekur sex þjónustumiðstöðvar í hverfum Reykjavíkur og er hlutverk þeirra m.a. að veita Reykvíkingum þverfaglega og samræmda þjónustu um persónuleg málefni. Á þjónustumiðstöðvum er m.a. hægt að sækja um fjárhagsaðstoð, húsaleigubætur og félagslegar leiguíbúðir.

Ráðgjöf á þjónustumiðstöðvum
Fagfólk sem starfar hjá þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar veitir einstaklingum og fjölskyldum ráðgjöf. Markmið með ráðgjöfinni er að veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál og stuðning vegna félagslegs og persónulegs vanda. Einnig geta ráðgjafar veitt upplýsingar um möguleika á annarri þjónustu svo og vísað fólki í þau úrræði sem henta hverjum og einum. Ráðgjöfin tekur m.a. til atvinnyleysis, áfengis- og vímuefnavanda, fjáhagsvanda, fjölskylduvanda o.fl.

  • Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts, Hraunbæ 115, sími: 411 1200,www.arbaer.is
  • Þjónustumiðstöð Breiðholts, Álfabakka 12, sími: 411 1300,www.breidholt.is
  • Miðgarður, Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, Langarima 21 sími: 411 1400, www.grafarvogur.is,www.midgardur.is
  • Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis, Síðumúla 39 sími: 411 1500,www.reykjavik.is/laugardalur
  • Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Skúlagötu 21 sími: 411 1600 www.reykjavik.is/midborghlidar, Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Hjarðarhaga 45 – 47 sími: 411 1700,www.vesturbaer.is

Um allt þetta, og fleira til, er hægt að lesa í "Þjónusta fyrir einstaklinga og fjölskyldur-kortlagningu úrræða og þjónustutilboða" á vefsíðu eða á pdf-skjali.

Um aðgerðateymið má lesa með því að smella hér (pdf-skjal, fyrirlestur Maríu Rúnarsdóttur, verkefnisstjóra og starfsmanns aðgerðateymis, frá 25. febrúar 2009)

Hvað er í boði?  Í Rauðakrosshúsinu, að Borgartúni 25, geta einstaklingar og hópar sótt sér sálrænan stuðning og ráðgjöf um margvísleg úrræði sem bjóðast í samfélaginu. Að auki stendur atvinnulausum til boða ýmis konar félagsstarf og námskeið. Í húsinu er góð aðstaða fyrir ýmiskonar hópastarf auk fræðslu um margvísleg efni. Nýverið tók starfsfólk Rauðakrosshússins saman skjal, sem inniheldur samantekt á þeim úrræðum sem eru í boði fyrir atvinnulausa, undir heitinu "Hvað er í boði" og mun skjalið verða uppfært reglulega. Húsið er opið alla virka daga frá kl. 14-18. Sjá nánari upplýsingar hér.  
Skjaldarmerki  Vakin er athygli á Velferðarvakt velferðarráðuneytisins. http://www.velferdarraduneyti.is/velferdarvaktin/
island.is  Á upplýsingavef forsætisráðuneytisins, http://www.island.is, má nálgast yfirgripsmiklar upplýsingar og leiðarvísi um opinbera þjónustu og þar er hægt að finna mörg svör við spurningum er brenna á fólki vegna efnahagsvandans. Þar er líka að finna ýmsar spurningar sem hafa vaknað meðal fólks vegna efnahagsvanda þjóðarinnar og tengla á svör við spurningunum. Sjá frekar með því að smella hér.
Vinnumálastofnun  Opið virka daga frá kl. 9:00 - 15:00 á öllum skrifstofum Vinnumálastofnunar. Ath. að á höfuðborgarsvæðinu, Engjateigi 11, hefur opnunartímiá föstudögum verið styttur og er þá opið frá 9:00 - 12:00 
Hlutverkasetur  Hlutverkasetur býður upp á umgjörð, hvatningu og stuðning fyrir þá sem vilja efla starfsgetu á markvissan hátt eða auka lífsgæðin. Stefnt er að því að efla sjálfsmynd gegnum verkefni, fræðslu og umræður.
Markmið er að komast aftur út á almennan vinnumarkað, fara í nám eða auka lífsgæði. Sem dæmi um verkefni má nefna tölvukennslu, tungumálanám (enska, spænska og þýska), listsköpun, námsaðstoð, leiklist, súpu og brauðlist, eigin áhugamál og undirbúning fyrir nám. 
Opni háskólinn  Opni háskólinn og stéttarfélögin bjóða upp á úrræði fyrir þá sem misst hafa vinnuna,TÆKIFÆRI - úrræði á erfiðum tímum. TÆKIFÆRI er sniðið að fólki sem nú er að takast á við breytta stöðu á vinnumarkaði og aðstoða það við að finna úrræði og viðspyrnu í leit að atvinnu, námsleiðum eða nýsköpunartækifærum. Sjá nánar á heimasíðu Opna Háskólans.
Fjölmenningarsetur  Hægt er að nálgast upplýsingar um hjálparstofnanir og fjárhagsaðstoð á pólsku frá Fjölmenningarsetrinu á Ísafirði.

Spurt & Svarað

Á eftirtölum vefsíðum má sjá spurningar og svör sem birt hafa verið á hinum ýmsu þjónustusíðum:

  • Spurt og svarað á vef Alþýðusambands Íslands
  • Spurt og svarað á vef Fjármálaeftirlits
  • Spurt og svarað á vef Íbúðalánasjóðs
  • Spurt og svarað á vef Umboðsmanns skuldara
  • Spurt og svarað um atvinnnuleysisbætur á vef Vinnumálastofnunar
  • Spurt og svarað um atvinnumál á vef velferðarráðuneytis