Akstursþjónusta eldri borgara
Akstursþjónusta eldri borgara er fyrir þá íbúa Reykjavíkur sem eru 67 ára eða eldri, búa sjálfstætt og eru ófærir um að nota almenningssamgöngur vegna langvarandi hreyfihömlunar og hafa ekki aðgang að eigin farartæki.
Með langvarandi hreyfihömlun er átt við að lágmarki 3ja mánaða hreyfihömlun þar sem talið er að þá sé liðinn það langur tími að ætla megi að kostnaður vegna ferða hafi áhrif á fjárhag viðkomandi.
Umsókn um akstursþjónustu eldri borgara skal berast til þjónustumiðstöðvar í því hverfi þar sem umsækjandi býr. Skal umsóknin metin á grundvelli möguleika umsækjanda til að nýta sér almenningssamgöngur og/eða aðra ferðamöguleika.
Þegar umsækjandi hefur fengið samþykkta umsókn getur hann snúið sér beint til rekstraraðila.
Fyrirspurnir og/eða ábendingar
Almennum kvörtunum/ábendingum er hægt að koma á framfæri símleiðis eða í móttöku á þjónustumiðstöðvum borgarinnar, einnig Velferðarsviði Reykjavíkurborgar, Borgartúni 10-12, sími: 4 11 11 11 Ákvörðun um synjun á akstursþjónustu eldri borgara má áfrýja til Velferðarráðs Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík. Skal það gert skriflega og eigi síðar en 4 vikum eftir að viðkomandi barst vitneskja um ákvörðun.
Ákvörðun velferðarráðs má áfrýja til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, velferðarráðuneyti, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 150 Reykjavík. Skal það gert eigi síðar en 3 mánuðum frá því að viðkomandi barst vitneskju um ákvörðun.