Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hjálmar Sveinsson

 Hjálmar SveinssonNetfang: hjalmarsveinsson@gmail.com.

Ég er fæddur tíunda desember 1958. Ég ólst upp á ljóðrænu heimili í Hafnarfirði og á bænum Hlíð í Gnúpverjahreppi. Ég bjó á árunum 1986 til 1997 í Berlín. Þar sá ég Múrinn falla og veit síðan þá að ekkert er ómögulegt. Römmustu virki óréttlætis geta fallið á svipstundu.

Ég hef starfað lengi við fjölmiðla, þar af síðustu 12 árin sem dagskrárgerðarmaður við RÚV.  Ég er umsjónarmaður þáttanna Spegillinn og Krossgötur.

Ég hef skrifað og gefið út nokkrar bækur um íslenska listamenn. Stofnaði árið 2000 fræðibókaritröðina ATVIK og bókaútgáfuna OMDÚRMAN árið 2007. Ég starfaði í mörg sumur sem leiðsögumaður á hálendi Íslands.

Námsferill
                        BA – próf í heimspeki og bókmenntafræði frá                                
                        Háskóla Íslands.
                        MA – próf í heimspeki, þýskum fræðum og                                    
                        bókmenntum frá Freie Universität Berlin.

Núverandi nefndastörf á vegum Reykjavíkurborgar
Borgarráð, varamaður;
Skipulagsráð;
Umhverfis- og samgönguráð;
Stjórn Faxaflóahafna, formaður;
Hverfisráð Miðborgar, varamaður;
Svæðisskipulagsráð SSH, varamaður.