Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hanna Birna Kristjánsdóttir

Hanna Birna Kristjánsdóttir

 Netfang: hanna.birna.kristjansdottir@reykjavik.is.

Hanna Birna fæddist 12. október 1966. Hún er fædd og uppalin í Hafnarfirði, dóttir Aðalheiðar J. Björnsdóttur og Kristjáns Ármannssonar. Maki Hönnu Birnu er Vilhjálmur Jens Árnason heimspekingur og eiga þau tvær dætur.

Námsferill
1993                M.Sc. – próf  í alþjóðlegum og evrópskum 
                        stjórnmálum frá Edinburgh University.
1991                BA – próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.
1986                Stúdentspróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík.
1984                Verslunarskólapróf frá Verslunarskóla Íslands.

Starfsferill
2002 – (nú)     Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
                        Borgarstjóri frá 21. ágúst 2008 til 15. júní 2010.
                        Forseti borgarstjórnar frá 24. janúar 2008 til 21. ágúst 2008.
2006 – 2008    Formaður skipulagsráðs.
1999 – 2006    Aðstoðarframkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.
1995 – 1999    Framkvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðismanna.
1994 – 1995    Deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneytinu.
1990 – 1991    Starfsmaður Öryggismálanefndar.

Félagsstörf og nefndasetur
2008 – (nú)     Formaður almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins.
2008 – (nú)     Formaður stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
2008 – (nú)     Í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
2006 – (nú)     Fulltrúi í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga.
2002 – (nú)     Í stjórn Höfuðborgarstofu.
2007 – 2008    Varamaður í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR).
2007 – 2008    Í stjórn Faxaflóahafna.
2006 – 2007    Varamaður í stjórn skipulagssjóðs.
2006 – 2007    Í stjórnkerfisnefnd.
2006 – 2007    Varamaður í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
2005 – 2008    Í skipulagsráði.
2005 – 2006    Í framkvæmdaráði.
2005 – 2006    Í menntamálanefnd
2004 – 2006    Varamaður í stjórn Landsvirkjunar.
2003 – 2008    Í borgarráði.
2003 – 2005    Í stjórn Fasteignastofu.
2002 – 2006    Í hverfisráði Árbæjar.
2002 – 2005    Í skipulags- og byggingarnefnd.
2002 – 2005    Í fræðsluráði.
2002 – 2003    Í menningarmálanefnd.
2002 – 2003    Varamaður í borgarráði.
1997 – 1998    Formaður nefndar menntamálaráðherra um mótun símenntunarstefnu.
1995 – 1999    Í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna.
1995 – 1996    Í stjórn hverfafélags sjálfstæðismanna í Austurbæ og Norðurmýri.

Ritstörf
Hanna Birna hefur jafnframt ritað ýmsar greinar um stjórnmál sem birst hafa í blöðum, tímaritum og bókum.

Núverandi nefndastörf á vegum Reykjavíkurborgar
Borgarráð,
Stjórn Faxaflóahafna sf.,
Fulltrúaráð SSH.