Jafnrétti
Óheimilt er að mismuna fólki vegna kyns. Hvatt er til jafnrar þátttöku og áhrifa kvenna og karla í borgarsamfélaginu og markvisst skal unnið gegn allri mismunun og hamlandi áhrifum staðlaðra ímynda kynjanna. Framlag hvers og eins skal metið að verðleikum án tillits til kyns viðkomandi.
2.1 Reykjavíkurborg sem stjórnvald
Við skipan í nefndir, stjórnir og ráð skal hafa að markmiði að hlutföll kynjanna séu sem jöfnust. Jafnræði kynjanna skal einnig hafa að leiðarljósi þegar valdir eru fulltrúar í vinnuhópa til undirbúnings stefnumótunar og meiriháttar ákvarðana.
2.1.1
Í undirbúningi að ákvarðanatöku og við úthlutun fjármagns, t.d. í fjárhagsáætlunargerð og þegar teknar eru aðrar ákvarðanir um úthlutun fjármagns, þarf að taka mið af þörfum og viðhorfum beggja kynja og greina áhrif ákvarðana á stöðu þeirra.
2.1.2
Reykjavíkurborg einsetur sér að vinna gegn kynbundnu ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt. Öll starfsemi borgarinnar skal taka mið af þessu markmiði.
2.1.3
Reykjavíkurborg einsetur sér að vinna gegn klámvæðingu og vændi. Af þeim sökum er mikilvægt að sporna áfram gegn rekstri nektardansstaða í borginni.
2.2 Reykjavíkurborg sem atvinnurekandi
Tryggt verði með skipulögðu jafnréttisstarfi að konur og karlar njóti jafnréttis á vinnustöðum Reykjavíkurborgar í hvívetna.
2.2.1
Í öllum auglýsingum á vegum stofnana og fyrirtækja Reykjavíkurborgar skal gæta jafnræðis allra hópa og jafnrar virðingar kynjanna, sbr. 18. gr. jafnréttislaga. Atvinnuauglýsingar skulu að jafnaði vera kynhlutlausar en sé um að ræða störf þar sem hallar á annað kynið skal vekja athygli á því markmiði jafnréttisstefnunnar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreinar.
2.2.2
Jafnréttissjónarmið skulu metin til jafns við önnur sjónarmið þegar ráðið er í stöður hjá Reykjavíkurborg. Umsækjandi af því kyni sem er í minnihluta í viðkomandi starfsgrein skal að öðru jöfnu ganga fyrir við ráðningu þegar hann er jafnhæfur eða hæfari en aðrir umsækjendur. Við ráðningar er óheimilt að mismuna kynjum á grundvelli hjúskapar eða fjölskyldustöðu, þungunar eða hugsanlegra barneigna, eða annarra þátta þar sem ætla má að kynbundnir einkahagir hafi áhrif.
2.2.3
Konur og karlar skulu njóta sambærilegra kjara og réttinda. Greiða skal konum og körlum jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf. Einstaklingsbundin laun, s.s. hæfnis- og árangurslaun, og aðrar ákvarðanir sem hafa áhrif á kjör skulu byggjast á málefnalegum forsendum, óháð kyni. Reykjavíkurborg telur að launaleynd sé ein af uppsprettum kynbundins launamunar og að henni beri því að útrýma hvar sem hún kann að vera til staðar.
2.2.4
Vinnuaðstæður skulu taka mið af þörfum beggja kynja. Við úthlutun verkefna, tilfærslur í störfum og hugsanlegar uppsagnir skal jafnrétti kynjanna haft að leiðarljósi. Starfsþróun og símenntun skal nýta til aukins jafnréttis kynja og jafnrar virðingar á vinnustað.
2.2.5
Stuðla ber að jákvæðu viðhorfi til allra starfa innan borgarinnar og að andrúmsloft á vinnustað sé gott.
2.2.6.
Reykjavíkurborg vill nýta kosti sveigjanleika á vinnustað til að auðvelda starfsfólki að samræma einkalíf, fjölskylduábyrgð og starf og stjórnendum að mæta breytilegum þörfum starfseminnar. Starfsfólk skal eiga kost á sveigjanlegum vinnutíma, hlutastörfum eða annarri hagræðingu vinnutíma eða vinnuskipulags þar sem því verður við komið og hentað getur hvort sem heldur er konum eða körlum og starfseminni. Sérstök áhersla er lögð á að vinna gegn stöðluðum ímyndum um hlutverkaskiptingu kynjanna hvað snertir fjölskylduábyrgð og karlar eru hvattir til að nýta sér sveigjanleika, hlutastörf eða aðrar leiðir til að þeir geti tekið fulla ábyrgð á fjölskyldu sinni.
2.2.7
Kynferðisleg áreitni er með öllu óheimil á vinnustöðum borgarinnar. Vísað er til 17. gr. jafnréttislaga um skilgreiningu á kynferðislegri áreitni. Sé yfirmanni eða trúnaðarmanni gert viðvart um slíka hegðun ber viðkomandi, í samráði við forstöðumann eða eftir atvikum aðra yfirmenn stjórnsýslunnar, tafarlaust að binda endi á hana. Þolandi skal engan skaða bera af ráðstöfunum sem gripið er til í því skyni. Alvarleg eða endurtekin áreitni getur varðað fyrirvaralausan brottrekstur geranda úr starfi. Verklagsreglur um viðbrögð við slíkri hegðun skulu vera aðgengilegar starfsfólki.
2.3 Reykjavíkurborg sem miðstöð þjónustu
Flétta skal jafnréttissjónarmið saman við alla þjónustu Reykjavíkurborgar og á þjónustan að einkennast af jákvæðum samskiptum og gagnkvæmri virðingu kynjanna.
2.3.1
Konur og karlar eigi jafnan aðgang að þjónustu borgarinnar. Við ákvarðanir um tilhögun þjónustu skal taka mið af þörfum beggja kynja og áhrifum hennar á konur og karla.
2.3.2
Allt uppeldis- og tómstundastarf, menntun og fræðsla sem fram fer á ábyrgð Reykjavíkurborgar og stofnana hennar hafi jafna stöðu kynjanna að leiðarljósi. Börnum og unglingum sé veitt hvatning til að rækta hæfileika sína og persónuþroska án hamlandi áhrifa hefðbundinna kynjaímynda. Styrkja skal jákvæð samskipti og gagnkvæma virðingu kynjanna í öllu starfi með æskufólki. Fræðsluyfirvöld í Reykjavík, svo og stjórnendur félags- og tómstundastarfs, styrki jákvæða kynímynd stúlkna og pilta og vinni gegn skaðlegum áhrifum klámvæðingar meðal unglinga.
Hér er að finna jafnréttisáætlanir þeirra sviða sem hafa lokið gerð þeirra.
Jafnréttisáætlun ÍTR
Jafnréttisáætlun Menningar- og ferðamálasviðs
Jafnréttisáætlun Skiplags- og byggingarsviðs
Jafnréttisáætlun Velferðarsviðs