Mannvirkjaskrifstofa

Skrifstofustjóri: Ámundi Brynjólfsson, amundi.v.brynjolfsson@reykjavik.is
Mannvirkjaskrifstofa hefur umsjón með öllum nýframkvæmdum og endurgerð fasteigna, gatna, stíga og opinna svæða á vegum Reykjavíkurborgar, allt frá undirbúningsstigi til þess að fullgert mannvirki er tekið í notkun.

Helstu verkefni mannvirkjaskrifstofu eru:
- Að sjá um greiningu á þörf fyrir nýframkvæmdir eftir þróun skipulags og umferðar og í samráði við viðkomandi fagsvið. Skilgreina þarfir og markmið ásamt því að kanna mismunandi valkosti.
- Að annast gerð forsagna, rýmisáætlana, kostnaðaráætlana og fleira.
- Að hafa umsjón og eftirlit með hönnun og ráðgjöf og gerð samninga við hönnuði.
- Að sjá um útgáfu útboðsgagna og útboð í samvinnu við innkaupaskrifstofu og/eða innkauparáð Reykjavíkurborgar.
- Að meta tilboð og hæfni bjóðenda.
- Að hafa umsjón og eftirlit með framkvæmdum, lokaúttekt, uppgjöri verka og skilamati.
- Í starfi mannvirkjaskrifstofu er lögð áhersla á að sérhvert verk sé unnið á faglegan, vandaðan og skipulegan hátt allt frá undirbúningi og þar til að mannvirki er afhent til rekstrar.