Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Landupplýsingar

Landupplýsingar

Deildarstjóri: Lech Pajdak, lech.robert.pajdak@reykjavik.is

Landupplýsingar hafa umsjón með öllum gagnagrunnum sem innihalda landtengdar upplýsingar og leggja aðaláherslu á að hafa réttar og lifandi upplýsingar, byggðar á traustum grunni. Öflun, viðhald, úrvinnsla og afgreiðsla landupplýsinga eru aðalverkefnin, en deildin ber einnig ábyrgð á stjórn og rekstri LUKR, mælingum og útgáfu mæliblaða.
Landupplýsingum er skipt í tvær deildir (mælingar og LUKR), en Landupplýsingakerfi Reykjavíkur (LUKR) er samstarfsverkefni Framkvæmda- og eignasviðs, Skipulags- og byggingarsviðs, Orkuveitu Reykjavíkur og Símans.

Helstu verkefni landupplýsinga eru:

  • Gerð og viðhald mæliblaða.
  • Mælingar.
  • Viðhald hnita- og hæðakerfis.
  • Umsjón með staðgreini.
  • Hnitsetning eldri lóða. 
  • Stjórn og rekstur LUKR.
  • Uppbygging og viðhald gagnagrunna og tengitaflna LUKR. 
  • Umsjón með Borgarsjá og Borgarvefsjá.
  • Öflun loftmynda.
  • Kortagerð.
  • Skráning, úrvinnsla og afgreiðsla landupplýsinga.
  • Uppfærsla á tölum svæðisskipulags