Hverfastöðvar

Framkvæmda- og eignasvið rekur hverfastöðvar sem sinna ýmsum verkefnum og þjónustu við íbúana í viðkomandi hverfum. Borgarbúar geta leitað til hverfastöðvanna með ábendingar og athugasemdir um hvaðeina er varðar götur, gönguleiðir, opin svæði, snjómokstur, hreinsun, grasslátt og fleira.
Hafir þú ábendingu getur þú hringt í síma 411 11 11
eða sent tölvupóst á netfangið upplysingar@reykjavik.is
Verkefni hverfastöðvanna
Hver hverfastöð sinnir eftirfarandi verkefnum á sínu svæði:
- Viðhald malbikaðra og hellulagðra hraðahindrana.
- Viðhald þrenginga, umferðareyja og 30 km hliða.
- Viðhald göngustíga, gangstétta, kantsteina og áningarstaða.
- Peruskipti og hreinsun umferðarljósa, hreinsun skilta, vegvísa og skiltabrúa.
- Hreinsun og viðhald ruslastampa.
- Grassláttur og grasviðgerðir.
- Viðhald girðinga, leikvalla og leiktækja.
- Vorhreinsun opinna svæða.
- Þjónusta við vinnuskólann og ellilífeyrisþega.
- Áramótabrennur, uppsetning og hirðing jólatrjáa.
- Snjómokstur, hálkueyðing og hreinsun niðurfalla.
- Málun og stærri viðgerðir brúa og undirganga, hreinsun veggjakrots.