Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Götu- og svæðislýsing

Götulýsing - skreytimynd

Lýsing á götum, gangstígum, bílastæðum og lóðum er meðal þeirra gæða sem við göngum út frá í okkar daglega lífi og vaka íbúar gjarnan yfir gæðum lýsingar.

Láttu okkur vita ef ekki er kveikt á perunni

Það sem vegfarendur verða fyrst og fremst varir við er hvort kveikt sé á götulýsingunni eða ekki og ef ekki logar þá er það oft vegna þess að pera er farin, en einnig geta önnur tæknileg atriði verið að trufla eins og bilun í streng eða í spennistöð. 

Mikilvægt er að láta vita þegar ekki logar á götulýsingunni. Við tökum fagnandi öllum ábendingum um götulýsingu – sendu okkur tölvupóst á netfangið fer@reykjavik.is eða hringdu í síma 4 11 11 11. 

Unnið er að ábendingavef til að vísa á það sem lagfæra þarf í götulýsingu. Ábendingavefur verður opnaður í febrúar 2012.

Þriðjungur götulýsingar á Íslandi er í Reykjavík

Í Reykjavík eru hátt í 30 þúsund götuljós eða lampar, eins og sjá má í töflunni hér fyrir neðan.  Til samanburðar eru tölur fyrir landið í heild, en í Reykjavík eru um 34% allrar götulýsingar á landinu.

Staurar

Lampar

Uppsett afl (kW)

W/staur

W/íbúa

Íbúar/ Staur

Reykjavík

 27.882    

 29.887    

4.761    

  171       

41      

    4,21    

Landið allt (áætlað): 

 80.907    

 86.492    

         12.349

  153

        39  

    3,93    

 

Fjöldi lampa er fleiri en staura því á staurum eru stundum fleiri en einn lampi og einnig eru lampar í undirgöngum og á pollum taldir með. 
Reykjavíkurborg er langstærsti notandinn með 21.000 lampa.  Aðrir stórir notendur eru Vegagerðin, sem sér um lýsingu á stofnbrautum og Faxaflóahafnir sem sér um lýsingu á hafnarsvæðum.  Einnig eru inn í heildartölunni lóðarhafar sem eru með lýsingu á bílastæðum og einkalóðum.

Dagsbirtan stjórnar götulýsingunni

Götulýsing í Reykjavík tekur mið af dagsbirtu og hún stjórnar logtíma. Vorið 2009 var viðmiðunargildum breytt og var þá slökkt á götulýsingu að meðaltali 7 mínútum fyrr og kveikt 7 mínútum síðar á kvöldin. Miðað er við sama birtustig og tíðkast á Norðurlöndum.

Undantekning frá þessari stýringu er gerð nokkra daga í október og febrúar, en þá er götulýsing látin loga lengur til að ekki slokkni á morgnana frá kl. 7:45 - 8:30 þegar börn eru á leið í skólann.

Fyrir breytinguna vorið 2009 logaði götulýsingin í um 4.000 klst. , en eftir breytingu í um 3.700 klst. Þessi munur á logtíma eru um 8 % sem þá sparast í orkunotkun og einnig í minni viðhaldskostnaði vegna peruskipta. Hugmyndin kom upp í hagræðingarvinnu á vegum Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar.  Logtími á sumrin frá 20. maí til 1. ágúst  er u.þ.b. 150 klst.  eða 4% af heildar logtíma og þar af eru um 20 dagar sem ekki kviknar á götulýsingu vegna birtu. Ljósneminn sem mælir dagsbirtuna er staðsettur á þaki höfuðstöðva OR á Bæjarhálsinum.  Sagt var frá breytingunni í frétt á sínum tíma – skoða frétt

Hvít borg eða gul?

Í götulýsingunni í Reykjavík eru nokkrar gerðir af perum eins og sést í töflunni hér fyrir neðan.  Einnig er hægt að skipta þessu í tvo flokka eftir lit eða í „hvíta birtu“ og  „gula birtu“.  Hvíta birtan er kvikasilfur- og málmhalógenperur en gula birtan er natríum- (sodium á ensku).

Fjöldi lampa eftir perugerð

Kvikasilfur

Natríum

Málm Halogen

Aðrar teg.

Hlutfall kvikasilfurs-lampa

Reykjavík:

     13.929    

   14.324    

     1.018     

       616    

47%

Landið allt:

     30.966    

   49.912    

    1.697    

   1.681    

37%

Í töflunni er hlutfall kvikasilfurspera af heildar fjölda sýnt sérstaklega, því  1. apríl 2015 gengur í gildi bann við innflutningi og sölu á slíkum perum.  Það kallar á töluverða endurnýjun í búnaði og er einkum horft til LED ljósatæknin leysi kvikasilfrið af hólmi og er þegar farið að prófa slíkan búnað í Reykjavík. Með LED tækninni er hægt að stýra „hlýleika“ birtunnar.  Gert er ráð fyrir nokkrum tækniframförum á næstunni.  [ sjá nánar hér neðar á síðunni (tengill) ]

Auknar kröfur um hagræðingu í götulýsingu

Rekstur götulýsingar skiptist í megindráttum í þrennt: orkukaup, viðhald og endurnýjun. 
Orkukaupin í götulýsingunni er ekki mæld heldur reiknuð út frá uppsettu afli. Reykjavíkurborg greiðir almennan taxta fyrir orkuna þrátt fyrir magnkaup.  Eurostat hefur borið saman verð á orku til heimilisnota og iðnaðar og leiðir sá samanburður í ljós hátt í helmings mun.  Sjá upplýsingar á vef Eurostat 

Peruskipti

Peruskipti eru mismunandi eftir perutegundum.

Kvikasilfurperum
er skipt kerfisbundið út á 4 ára fresti og hefur sá tími verið lengdur í sparnaðarskyni. Var áður skipt út á þriggja ára fresti en vegna tækniþróunar hefur líftíminn lengst og gerir þetta mögulegt. Ekki deyr á kvikasilfurperum heldur dofna þær og verða grænleitar undir lok líftíma.

Natríumperum er skipt út jafnóðum og það slokknar á þeim eða á 4 – 6 ára fresti. Brugðist er við ábendingum íbúa vegna skipta á þeim perum og einnig eru farnar eftirlitsferðir hjá Framkvæmda- og eignasviði.

Um aðrar perutegundir (s.s. málmhalógenperur og einstaka sparperur) gildir það sama og um natríumperur.

LED ljósgjafar eru ekki eiginlegar perur heldur glóandi rafrás – hálfleiðari. Lítil reynsla er komin á þá tækni, en gert er ráð fyrir 50 – 100.000 lýsingatímum. Í árum talið er það 13 – 27 ár. Þeir lampar sem hafa verið settir upp í Reykjavík eru gefnir upp fyrir 80 þúsund klukkustundir eða um 20 ár.

Endurnýjun búnaðar

Auk peruskipta þarf að endurnýja lampa, staura og dreifikerfi (strengir og skápar).  Líftími lampa hefur verið áætlaður um 15 ár, staurar um 30 ár og dreifikerfi um 40 ár. Líftíminn hefur þó ekki verið rannsakaður til fulls. Í árslok 2011 voru um  6 þús lampar sem komnir voru yfir líftíma og 10 þús staurar.

Innflutningur og sala á kvikasilfurperum verður bönnuð frá og með 1. apríl 2015. Það hefur í för með sér að endurnýja þarf kvikasilfurslampa og í ársbyrjun 2012 er 47% lampa í Reykjavík kvikasilfurlampar.  Þetta hlutfall er hærra í Reykjavík en hjá öðrum sveitarfélögum.  Kvikasilfur var á sínum tíma valið vegna ljósgæða – birtan er hvítari en í natríum og litarendurgjöf ljóssins betri fyrir mannsaugað en það gerir liti greinilegri og hentar því betur í miðbænum og íbúðargötum.

Kostnaður

Í samræmi við aðhald í rekstri Reykjavíkurborgar er kostnaðargát einnig vegna götulýsingar. Kostnaðurinn skiptist í nýframkvæmdir og rekstur en undir hann falla endurnýjun, viðhald og orkukaup. Hér fyrir neðan er yfirsýn yfir viðhaldskostnað og orkukaup síðustu ár eins og fært hefur verið til bókar hjá Framkvæmda- og eignasviði. Orkuveita Reykjavíkur annast viðhald götulýsingar og selur okkur orku.
 

Kostnaður vegna viðhalds 2008

121 milljón kr.

Kostnaður vegna viðhalds 2009

128milljónir kr.

Kostnaður vegna viðhalds 2010

93 milljónir kr.

Orkukaup 2008

111 milljónir kr.

Orkukaup 2009

145 milljónir kr.

Orkukaup 2010

146 milljónir kr.

 

 

 


 

Vefsíða uppfærð 19. desember 2011 / GLÓ; JHJ