Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Eignavefur

Eignavefur

Eignavefurinn er gagnagrunnur til utanumhalds fasteigna Reykjavíkurborgar og með honum er gert aðgengilegt á einum stað hvernig staðið er að rekstri, uppbyggingu, þróun, viðhaldi og umsjón fasteigna. Notendur fasteigna geta á vefnum skoðað margvíslegar upplýsingar um fasteignirnar, allt frá hvaða þjónustuaðilar sinna byggingunni til viðhaldsáætlana. Einnig geta notendur sent inn óskir um viðhaldsverkefni og fylgst með stöðu verka í verkbeiðnahluta kerfisins.

Borgin á um 350 byggingar og er eignavefurinn mikilvægur þáttur í viðhaldi þeirra. Í kerfinu er haldið utan um teikningar bygginganna og er fjöldi teikninga yfir 16.000 talsins. Þá eru um 9.000 ljósmyndir í kerfinu, sem og um 600 skjöl og samningar.

Fara í fasteignagrunn >>>
(notendanafn og lykilorð er Esja)