Fréttir
Uppskeruhátíð býflugnabænda verður haldin í veitingatjaldi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins laugardaginn 4. september milli kl 14.00 og 16.00. Býflugnabændur af sunnanverðu landinu kynna býflugnarækt og koma með sýnishorn af uppskeru sumarsins. Þeir munu gefa gestum að smakka eigin framleiðslu af hunangi sem verður slengt beint úr búinu á staðnum.
Starfið á frístundaheimilum ÍTR er komið í gang og mikið fjör á þeim vígstöðvum. Aðsóknin er alltaf að aukast en alls hafa 3.203 umsóknir borist en það er um 500 umsóknum fleiri en á sama tíma í fyrra.
Í september verður boðið upp á fría Bowen meðferð í Vesturbæjarlaug. Bowen er mjúk og einföld tæknimeðferð þar sem leitast er við að losa stíflur í orkubraut líkamans, endurhlaða lífsorkuna (Chi) og aðstoða líkamann við að komast í sitt eðlilega form.
Færanlegar kennslustofur á skólalóð Vesturbæjarskóla eiga að leysa tímabundna húsnæðiseklu frístundaheimilis skólans. Nemendum við skólann hefur fjölgað talsvert milli ára og útlit fyrir að núverandi húsnæði rými ekki þann fjölda nemenda.
Skoða allar fréttir