Svo lengi lærir sem lifir
Námsflokkar Reykjavíkur bjóða fullorðnum Reykvíkingum, 16 ára og eldri, ný tækifæri til náms og náms- og starfsráðgjöf. Áhersla er á einstaklingsmiðað nám, við hæfi hvers og eins. Stefnt er að því að með aukinni menntun öðlist nemendur aukinn sjálfsstyrk og lífgæði.
Ert þú á aldrinum 17 - 25 ára? Hefur þú áhuga á námi í framhaldsskóla. Námsflokkar Reykjavíkur bjóða sérstakt tækifæri til náms í verkefninu Námskraftur. Innritun stendur yfir í síma 4117040. Umsjónamenn námsins eru Jódís Káradóttir og Hrönn Ágústsdóttir. Kennsla hefst 9. janúar.
Grunnnám hjá Námsflokkum Reykjavíkur hefst 16. janúar. Boðið er upp á nám í stærðfræði, íslensku og ensku. Eitt fag kostar 18.000, tvö fög kosta 22.000 og þrjú fög kosta 27.000
Námsflokkar Reykjavíkur hafa gert samnig við mennta- menningarmálaráðuneytið og Fjölbrautaskólann í Ármúla um námstilboð fyrir framhaldsskólanemendur sem horfið hafa frá námi.