Tengdar fréttir
11.05.2011
Margvíslegt tónlistaruppeldi og jafnræði til náms
Jafnræði til tónlistarnáms, metnaðarfull kennsla fyrir börn og ungmenni og markvisst tónlistaruppeldi eru meginmarkmið í stefnumótun um tónlistarfræðslu í Reykjavík sem kynnt var í menntaráði í dag. Starfshópur skipaður skólastjórum og kennurum tónlistarskóla og skólahljómsveita, fulltrúum FÍH og borgarfulltrúum hefur skilað tillögu að stefnu. Hún byggir m.a. á könnun meðal allra tónlistarkennara í Reykjavík um hvernig þeir sjá fyrir sér uppbyggingu tónlistarfræðslu í borginni. Markmið er að öll börn á yngsta stigi grunnskólans kynnist töfrum tónlistarinnar, s.s. í gegnum tónmenntakennslu, hljóðfærakynningar, kórastarf, hljóðfæraleik, samspil, sviðsframkomu og fleira. Oddný Sturludóttir var formaður starfshópsins.
Metnaðarfull tónlistarkennsla fyrir börn og ungmenni
Starfshópurinn hafði að leiðarljósi að fagleg, fjölbreytt og metnaðarfull tónlistarkennsla með áherslu á börn og ungmenni fari fram í borginni, án tillits til búsetu. Tónlistarskólar og skólahljómsveitir sinni margvíslegu tónlistaruppeldi í samstarfi við skóla og nærsamfélag. Lagt er til að þeir taki mið af aðstæðum í samfélaginu og starfi samkvæmt stefnu borgarinnar um skóla án aðgreiningar.
Fjölbreyttar námsleiðir og gæðaviðmið
Lagt er upp með að tónlistarnám taki mið af þremur meginmarkmiðum aðalnámskrár tónlistarskóla; uppeldislegum markmiðum, leikni- og skilningsmarkmiðum og samfélagslegum markmiðum. Skólarnir eiga að bjóða upp á fjölbreytt val um námsleiðir, hljóðfæri og kennsluhætti og hafasvigrúm til tilrauna og nýjunga.
Þeir tónlistarskólar sem borgin er í samstarfi við eiga að vera framúrskarandi mennta- og uppeldisstofnanir, góðir vinnustaðir og bjóða upp á metnaðarfulla skólanámskrá. Þeir skulu setja sér gæðaviðmið sem komi með skýrum hætti fram í skólanámskrá. Einnig er lagt til að tónlistarskólar setji sér reglur um námsframvindu og námsárangur í samræmi við reglur Reykjavíkurborgar um þjónustusamninga við tónlistarskóla og viðmið í aðalnámskrá. Þeir skuli reglulega gera innra mat á starfi sínu en Reykjavíkurborg eða annar hlutlaus aðili gerir ytra mat á starfi skólans.
Þjónustusamningar byggðir á faglegum kröfum
Í tillögum starfshópsins segir að tónlistarskólar með þjónustusamning við Reykjavíkurborg skuli hafa burði til að uppfylla skilyrði um fjölbreytt nám, fjárhagslega hagkvæmni og faglegt starf. Þjónustusamningar við tónlistarskóla og aðra sem sækja um fjármagn til tónlistaruppeldis barna og ungmenna eigi að byggja á faglegum kröfum, gegnsæi og jafnræði og verður samstarfið metið reglulega.
Stefna á traustum grunni
Stefna um tónlistarfræðslu í Reykjavík byggir á góðu starfi skólahljómsveita og tónlistarskóla síðustu áratugi, sem og stefnumótun fræðsluyfirvalda. Niðurstöður rafrænnar könnunar meðal tónlistarkennara voru starfshópnum leiðarljós um aðgengi til náms, gæði, fjölbreytni, eftirlit, foreldrasamstarf, námsframvindu og mat. Í inngangi skýrslunnar segir m.a. að gott tónlistaruppeldi efli sjálfstraust barna og auki virðingu þeirra fyrir hinu smáa, fallega og óútskýranlega sem sé ómetanlegt veganesti fyrir framtíðina.
Sjá skýrslu starfshóp um tónlistarfræðslu