Hlutverk og helstu verkefni starfshópsins Börnin í borginni:
-
Að vera með almenna vöktun á líðan barna í Reykjavík, óháð efnahag og félagslegri stöðu.
-
Að vakta líðan barna í leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum og frístundastarfi Reykjavíkurborgar.
-
Samstarf við aðgerðateymi Velferðarsviðs og gagnkvæm upplýsingagjöf, þ.m.t. að koma til skila upplýsingum sem snúa að vanlíðan og erfiðleikum barna og ungmenna til aðgerðateymis.
-
Að fylgjast með vanskilum vegna greiðslu á matarkostnaði grunnskólum, leikskólagjöldum frístundaheimilum.
Rafrænt fréttabréf teymisins:
1. tbl. nóvember 2008
2. tbl. desember 2008
3. tbl. mars 2009
Aðstoð við fjölskyldur
Oft snúa foreldrar sér beint til leikskóla/grunnskóla síns barns með ábendingar eða fyrirspurnir sem tengjast aðstæðum fjölskyldunnar og haft gætu áhrif á líðan barnsins, stöðu og skólagöngu. Oft er hægt að greiða úr málum innan skólans. Í þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar er boðið upp á ráðgjöf og aðstoð fyrir fjölskyldur.
Þjónustuver borgarinnar vísar á viðeigandi aðila,
sími 4 11 11 11.
Þjónustuverið svarar og beinir fyrirspurnum um aðstoð og gefur samband við allar stofnanir borgarinnar m.a.:
- Leikskóla í Reykjavík
- Grunnskóla í Reykjavík
- Frístundaheimili
- Þjónustumiðstöðvar í öllum hverfum.
Aðilar og málaflokkar tengdir börnum
Lýðheilsustöð - Hugum að velferð barna
Miðstöð heilsuverndar barna
Barnaverndastofa
umhuga.is - Upplýsingavefur um geðheilsu barna og ungmenna
Verndum bernskuna - Heilræði fyrir foreldra og aðra uppalendur
Umboðsmaður barna
|
Ertu með upplýsingar eða hugmyndir?
-
- Upplýsingar um eitthvað sem tengist efnhagsástandinu, t.d. um líðan barna, fjölskyldna,starfsmanna í leik- og grunnskólum eða í frístundastarfi?
-
- Hugmynd að einhverju sem hægt er að gera til aðstoðar fólki sem á um sárt að binda?
-
- Upplýsingar um úrræði sem í boði eru fyrir börnin og þá sem starfa með þeim við þær aðstæður sem nú eru (og ekki eru þegar tilgreind hér á síðunni)?.
-
- Erindi sem þú telur eiga heima á fundi borgarteymisins Börnin í borginni?
Sendu tölvupóst á netfangið bornin@reykjavik.is

Hjá Velferðarsviði Reykjavíkur er boðið upp á þjónustu fyrir fjölskyldur og einstaklinga. Sviðið hefur nú gert yfirlit yfir þá þjónustu sem í boði er þarog öðrum aðilum í samfélaginu.
Sjá: Þjónusta við einstaklinga og fjölskyldur
Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar
|