Foldaskóli fagnar aldarfjórðungsafmæli
04.05.2010
Á þessu ári eru 25 ár liðin frá því að Foldaskóli tók til starfa, en hann er elstur grunnskóla í Grafarvogi. Afmælisins verður minnst með margvíslegum hætti og hátíð verður í skólanum laugardaginn 8. maí.
Meðal þess sem nemendur hafa gert í tilefni afmælisársins er að gróðursetja tré á skólalóðinni sem verið er að endurgera. Þá hafa þeir unnið á þemadögum og á árshátíðinni í mars var litið til liðinnar aldar.
Afmælishátíðin á laugardag hefst kl. 11.00 og verður boðið upp á ýmsar uppákomur og skemmtiatriði, kennslustofur verða lagðar undir sýningar á vinnu nemenda og gömlum myndum úr skólastarfi stillt upp. Gamlir nemendur úr Foldaskóla og starfsmenn eru sérstaklega boðnir velkomnir á hátíðina svo og allir Grafarvogsbúar og velunnarar skólans.
Sjá dagskrá afmælishátíðar.