Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Innritun

Innritun

Innritun í grunnskóla Reykjavíkur skólaárið 2012-2013

Innritun barna sem fædd eru árið 2006 og eiga að hefja skólagöngu haustið 2012 fer fram dagana 6. - 12. febrúar næstkomandi. Innritun í grunnskólana fer fram í gegnum  Rafræna Reykjavík. Sömu daga fer fram innritun skólaskyldra barna og unglinga sem þurfa að flytjast milli skóla næsta haust. Þetta á við um þá sem flytjast til Reykjavíkur, koma úr sjálfstætt reknum skólum eða þurfa að skipta um skóla vegna breytinga á búsetu milli borgarhverfa. Nemendahópa sem flytjast í heild á milli skóla að loknum 6. og 7. bekk þarf ekki að innrita.

Senda má fyrirspurnir um innritun í tölvupósti til Hafdísar Gísladóttur

Sjá skóladagatal fyrir veturinn 2012-2013

Skólastarf hefst 22. ágúst 2012.