Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Byggingarmál

Byggingarmál


Skrifstofa byggingarfulltrúa
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Sími : 411 1111
Bréfsími : 411 3075
Netfang fyrir fyrirspurnir og ábendingar:  byggingarfulltrui@reykjavik.is

Afgreiðslan er opin frá 08.20 - 16.15. Í afgreiðslu í þjónustuveri Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, eru veittar almennar upplýsingar um byggingarmál. Þar er tekið á móti byggingarleyfisumsóknum og sérteikningum, gefnar upplýsingar um afgreiðslu umsókna, afhent ljósrit af teikningum úr skjalasafni, gefin út vottorð (t.d. fokheldisvottorð), skráðir byggingarstjórar og meistarar á verk, o.fl. Byggingarfulltrúi er Björn Stefán Hallsson:  bjorn.stefan.hallsson@reykjavik.is. Viðtalstímar (ekki í síma) eru kl. 15.00-16.15 á miðvikudögum og kl. 10.30 - 11.30 á föstudögum.  Viðtöl fyrir hönd byggingarfulltrúa tekur Bjarni Þór Jónsson skrifstofustjóri.  Skráning viðtalsbeiðna eru í síma 411 1111.

Úttektir. Tímapantanir vegna úttekta og lokaúttekta afgreiðist í gegnum síma - mán. til fös. 8.30-9.30 og 11-12.
Eignaskiptayfirlýsingar. Símatími er kl. 8.30 - 9.30 í síma 411 1111.
Ráðgjöf arkitekta. Arkitektar yfirfara byggingarleyfisumsóknir og veita ráðgjöf og upplýsingar um byggingarreglugerð,  bygginagarleyfisumsóknir, aðaluppdrætti, afgreiðslufundi byggingarfulltrúa,  skiltareglur o.fl.