Fréttir
Opnað hefur verið fyrir skráningu í matjurtagarða í Reykjavík. Um það bil 600 matjurtagarðar verða leigðir út til Reykvíkinga. Garðar eru í boði í Breiðholti, Árbæ, Vesturbæ, Fossvogi, Laugardal og Grafarvogi. Einnig verða 200 matjurtagarðar leigðir út á vegum borgarinnar í Skammadal í Mosfellsbæ.
Í tilefni af fréttum um notkun iðnaðarsalts í matvæli, vill Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur benda á að efnasamsetning saltsins réttlætir ekki dreifingu þess til matvælaframleiðslu eins og Ölgerðin og Matvælastofnun vilja láta í veðri vaka heldur er það framleiðsla, dreifing og geymsla saltsins sem veldur því að það er ekki notað til manneldis.
Aðföng hafa tilkynnt matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um innköllun af markaði á einni tegund af Euro Shopper núðlum vegna þess að varan inniheldur afurð úr mjólk (mjólkurprótein) sem ekki er tilgreind í innihaldslýsingu vörunnar.
Blandaður humar innkallaður vegna merkingaSvifryk 17 skipti yfir mörkum árið 2011Ómerktir ofnæmis- og óþolsvaldar á umbúðum ostaköku
Skoða fleiri fréttir