Ómerktir ofnæmis- og óþolsvaldar á umbúðum ostaköku
13.12.2011
Upplestur á frétt 
Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
Efni: Ómerktir ofnæmis- og óþolsvaldar (afurð úr soja, möndlur, egg og afurð úr mjólk) á umbúðum ostaköku með eplum og karamellusósu frá Krónunni.
Krónan hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla af markaði eftirfarandi vöru þar sem ofnæmis- og óþolsvaldar eru ekki merktir á umbúðum hennar:
Vörumerki: Krónan.
Vöruheiti: Ostakaka með eplum og karamellusósu.
Framleiðandi: Varan er framleidd fyrir Krónuna, Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík.
Geymsluskilyrði: Kælivara.
Dreifing: Verslanir Krónunnar um land allt.
Ekki kemur fram í innihaldslýsingu að hún inniheldur sojalesitín, möndlur, egg og smjör. Soja, hnetur (möndlur), egg, mjólk og afurðir úr þeim (sojalesitín og smjör), eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla. Tekið skal fram að innköllunin á einungis við vörur þar sem ofnæmis- og óþolsvaldarnir eru ómerktir.
Varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir soja, möndlum, eggjum, mjólk og afurðum úr þeim. Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir ofangreindum ofnæmis- og óþolsvöldum eru beðnir um að farga henni eða hafa samband við Krónuna í síma 458 1100.