02.01.2012
Upplestur á frétt
Styrkur svifryks í Reykjavík var á mælistöðinni við Grensásveg um 61 míkrógramm á rúmmetra á nýársnótt 2012. Árið 2011 mældist hann 23 míkrógrömm á rúmmetra og 225 árið 2010. Heilsuverndarmörkin á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra og 1. janúar 2012 því fyrsti svifryksdagur ársins.
Fyrstu klukkustundina árið 2012 fór styrkur svifryks þó í rúmlega 1000 míkrógrömm á rúmmetra en flugeldar eru meginástæða þess að 1. janúar er oft svifryksdagur í Reykjavík.
Árið 2010 fór styrkur svifryks 29 sinnum yfir heilsuverndarmörk en árið 2011 fór hann 17 sinnum yfir. Sú tala gæti reyndar lækkað í 15 skipti því verið er að skoða betur gögn frá tveimur svifryksdögum. Árið 2012 má ekki fara oftar 7 sinnum yfir heilsuverndarmörk samkvæmt reglugerð um svifryk (nr. 251/2002).
Tengill
Upplýsingar um svifryk
Umhverfis- og samgöngusvið
Borgartúni 12-14Sími 411 1111 Afgreiðsla - 8:20 - 16:15umhverfissvid@reykjavik.is