Blandaður humar innkallaður vegna merkinga
05.01.2012
Upplestur á frétt 
Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
Efni: Innköllun af markaði á blönduðum humri frá Humarsölunni ehf. vegna ómerkts ofnæmis- og óþolsvalds (súlfít).
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur fengið upplýsingar frá Matvælastofnun um að Humarsalan ehf. í Reykjanesbæ hafi ákveðið að innkalla af markaði blandaðan humar vegna þess að ofnæmis- og óþolsvaldurinn súlfít er ekki merktur á umbúðum vörunnar.
Vöruheiti: Blandaður humar.
Nettóþyngd: 900 g. Varan er 1000 g en 100 g er íshúð (10% af þyngd vörunnar).
Framleiðandi: Skinney-Þinganes hf., Hornafirði. Dreifingaraðili er Humarsalan ehf., Reykjanesbæ. Umbúðir: Plastpokar.
Geymsluskilyrði: Frystivara.
Dreifing: Verslanir Samkaupa (þ.m.t. verslanir Nettó).
Brennisteinsdíoxíð og súlfít (súlfít), gefið upp sem SO2, í styrk sem er yfir 10 mg/kg eða 10 mg/l er á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla.
Tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir súlfíti. Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir súlfíti eru beðnir um að farga henni eða skila til Humarsölunnar ehf., Básvegi 1, Reykjanesbæ. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Humarsölunnar ehf. í síma 867 6677.