Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Skráning hafin í matjurtagarða í Reykjavík

18.01.2012

Upplestur á frétt 

Opnað hefur verið fyrir skráningu í matjurtagarða í Reykjavík. Um það bil 600 matjurtagarðar verða leigðir út til Reykvíkinga. Garðar eru í boði í Breiðholti, Árbæ, Vesturbæ, Fossvogi, Laugardal og Grafarvogi. Einnig verða 200 matjurtagarðar leigðir út á vegum borgarinnar í Skammadal í Mosfellsbæ.

Leigugjöld ársins 2012 eru þau sömu og í fyrra eða 4.600 kr. fyrir garðland í Skammadal (ca. 100m2), 4.200 kr. fyrir garð í Fjölskyldugörðunum (ca. 20m2). Görðunum verður skilað tættum og merktum. Hægt verður að komast í vatn á öllum stöðunum. Plöntur og útsæði fylgja ekki með görðunum.

Garðarnir verða tilbúnir upp úr miðjum maí og verður tilkynning sett á heimasíðu Umhverfis- og samgöngusviðs þegar þeir eru tilbúnir. Sótt er um með því að senda póst á netfangið matjurtagardar@reykjavik.is eða hringja í síma 411 1111.

Tengill:

Fjölskyldugarðar


Umhverfis- og samgöngusvið, Borgartúni 12-14.

Umhverfis- og samgöngusvið

Borgartúni 12-14
Sími 411 1111
Afgreiðsla - 8:20 - 16:15
umhverfissvid@reykjavik.is



Vottun hf, ÍST ISO 14001