Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Náttúra og útivist

Skrifstofa náttúru og útivistar vinnur að því að gera Reykjavíkurborg að fallegri borg þar sem græn svæði skapa umgjörð fyrir holla útivist, fræðslu og ræktun. Starfsfólk skrifstofunnar hefur m.a. umsjón með náttúruvernd í borgarlandinu, gróðri og dýralífi.

Starfsemi skrifstofu náttúru og útivistar er afar fjölþætt en mesti annatíminn er á sumrin og þá margfaldast fjöldi starfsmanna skrifstofunnar. Á skrifstofunni er starfsemi Náttúru og útivistar samræmd, áætlanir eru unnar og fylgst er með framvindu starfs- og fjárhagsáætlunar. Þar eru hönnuð þau leik- og útivistarsvæði sem starfsmenn verkbækistöðva setja upp í borginni og yfirumsjón með öðrum verkefnum á grænum svæðum borgarinnar. Við hönnun leik- og dvalarsvæða er lögð áhersla á að fella svæði að viðkomandi hverfi.

Hugað er að skjól- og rýmismyndun, líffræðilegum fjölbreytileika, snyrtilegum frágangi auk þess sem unnið er með afmörkun og tengingar svæðisins við aðliggjandi byggð.

Búnaður svæðanna tekur mið af hverfum og lagt er upp úr því að skapa umgjörð um fjölbreyttan leik þar sem ekki er lögð ofuráhersla á leiktæki eða annan aðkeyptan búnað. Heilnæmt og fagurt umhverfi, með fjölbreyttum möguleikum til almennrar útivistar er markmiðið.

Á skrifstofunni eru einnig afgreiddar umsóknir um leyfi til trjáfellinga og þar fer fram öll umsýsla vegna útleigu á matjurtagörðum.

 




Aðrir vefir Umhverfis- og samgöngusviðs
Umhverfis- og samgöngusvið, Borgartúni 12-14.

Umhverfis- og samgöngusvið

Borgartúni 12-14
Sími 411 1111
Afgreiðsla - 8:20 - 16:15
umhverfissvid@reykjavik.is



Vottun hf, ÍST ISO 14001



    Bláa tunna - tunna fyrir pappír og pappa


    Sorphirðudagatal


    Fjölskyldugarðar


    Visthæfir bílar


    Hjólaborgin Reykjavík