Atvinnuleysi og fjármál
Austurstræti verður göngugata - Framkvæmdir hafnar
Framkvæmdir eru hafnar við að breyta Austurstræti milli Lækjargötu og Pósthússtrætis í göngugötu. Ásýnd strætisins breytist nokkuð því grænu stálpollarnir sem liggja eftir endilöngu strætinu við núverandi bílastæði verða fjarlægðir og skapast þar svigrúm fyrir mannlífið í götunni. Trén í götunni verða áfram. Við Lækjargötu verður lokað fyrir umferð inn í Austurstræti og járnhliðið sem trónt hefur þar yfir verður fjarlægt.
Ný hellulögn ásamt snjóbræðslu kemur fyrir framan endurgerðu húsin Austurstræti 22 og Lækjargötu 2. Þá verður hellulögnin á gatnamótum Austurstrætis og Lækjargötu endurnýjuð, en þar hefur bílaumferð markað djúpar lægðir í götuna. Meðan unnið verður við gatnamótin verður þeim haldið opnum fyrir bílaumferð með einni akrein í hvora átt. Endurnýjun gatnamótanna verður lokið fyrir páska, en verklok verksins í heild er 16. maí.
Nánari upplýsingar um áfangaskiptingu og verkið í heild er að finna í Framkvæmdasjá. Með áfangaskiptingunni og góðu verklagi á að draga sem kostur er úr truflun vegna framkvæmdanna. Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á truflun vegna framkvæmdanna en eru jafnframt beðnir um að sýna aðgát og virða afmörkun vinnusvæða.
Skoða upplýsingasíðu í Framkvæmdasjá.
Til baka...