Fréttir
„Komum mynd á mannréttindi“ er yfirskrift ljósmyndasamkeppni sem hefst á degi mannréttinda hjá Reykjavíkurborg þann 16. maí. Markmið hennar er að vekja athygli á mannréttindum og banni við mismunun.
25. janúar síðastliðinn var foreldrum nemenda á miðstigi í Austurbæjar-, Hlíða og Háteigsskóla boðið á kynningu á helstu niðurstöðum rannsóknar sem Rannsóknir & greiningar gerðu í fyrra um hagi og líðan nemenda í 5. - 7. bekk. Yfirskrift kynningarinnar var Veistu hvernig barninu þínu líður? Skoðaðar voru niðurstöður fyrir nemendur í skólunum þremur og voru niðurstöður fyrir nemendur í grunnskólum Reykjavíkur hafðar til hliðsjónar. Samstarfshópurinn Samtaka í Miðborg og Hlíðum stóð að kynningunni en Jón Sigfússon og Inga Dóra Sigfúsdóttir frá Rannsóknum & greiningu kynntu niðurstöðurnar.
Nú er opið fyrir umsóknir um styrki í Forvarnarsjóð Reykjavíkur en hlutverk sjóðsins er að stuðla að forvörnum og styrkja félagsauð í hverfum Reykjavíkur. Styrkir úr sjóðnum verða veittir til verkefna sem styðja forvarnir í þágu barna og unglinga, eflingu á félagsauð i hverfum borgarinnar og verkefnum sem stuðla að bættri lýðheilsu.