Síðasti opni fundurinn um nýtt aðalskipulag var haldinn sl. fimmtudag 26. apríl í Ráðhúsi Reykjavíkur. Mæting hefði mátt vera betri en íbúarnir sem mættu voru áhugasamir og tóku virkan þátt á vinnubor...
Reykjavíkurborg óskar eftir hugmyndaríkum og duglegum einstaklingum og hópum til að taka þátt í endursköpun almenningssvæða og torga í biðstöðu í borginni í sumar. Umsóknarfrestur er til 1. maí 2012. ...
Alls voru 95 íbúðir skráðar sem fullgerðar eða teknar í notkun á árinu 2011 og allar úr steinsteypu, þar af voru 58 íbúðir í fjölbýlishúsum. Í byggingu sl. áramót vou 736 nýjar íbúðir og þar af voru 4...
Á fjórða tug Árbæinga funduðu um nýtt aðalskipulag í Fylkishöllinni í gær. Fundurinn var sá næstsíðasti af tíu fundum í öllum hverfum borgarinnar undir yfirskriftinni Borg fyrir fólk – betri hverfi.
Salurinn í Dalskóla var þéttsetinn í gær á hugmyndafundi íbúa um skipulagsmál. Íbúar gagnrýndu mjög hugmyndir um að draga úr stærð hverfisins og minni þjónustukjarna í Úlfarsárdal.
Við minnum á opinn fund um nýtt aðalskipulag sem haldinn verður í Fylkishöllinni kl. 17.00 í dag. Kaffi og kleinur í boði og barnasmiðja fyrir börnin.
Haldinn verður opinn kynningarfundur á nýju deiliskipulagi fyrir Landspítala Háskólasjúkrahús í Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnarsal kl. 17–19 næstkomandi fimmtudag þann 29. mars. Um er að ræða lögboðinn k...
Í tilefni af endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur er boðað til opinna funda í öllum hverfum borgarinnar. Fundurinn í Grafarvogi verður haldinn fimmtudaginn 22. mars kl. 17:00 í Hlöðunni við Gufunesbæ...