Reykvíkingar vilja bæta hverfin sín
20.01.2012
Upplestur á frétt 
Tæplega 190 hugmyndir hafa borist frá borgarbúum inn á vefinn Betri Hverfi á samráðsvefnum Betri Reykjavík. Lokað verður fyrir innsetningu hugmynda mánudaginn 23. janúar.
Mjög misjafnt er eftir hverfum hversu margar hugmyndir hafa borist. Þannig hafa fáar hugmyndir borist frá íbúum í miðborg en mjög margar frá íbúum í Árbæ svo eitthvað sé nefnt. Reykjavíkurborg hefur sett 300 milljónir í svokallaða hverfapotta sem eiga að fara í smærri verkefni og hafa borgaryfirvöld óskað eftir hugmyndum frá íbúum að slíkum verkefnum. Verkefnin skiptast í nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni.
Áður en lagt var af stað í verkefnið var fundað með íbúasamtökum, hverfaráðum og fleiri aðilum til að kynna það. Upplýsingabæklingur um verkefnið var ennfremur sendur inn á hvert heimili í Reykjavík. Eru íbúar hvattir til að taka þátt í verkefninu og skoða fram komnar hugmyndir í sínu hverfi. Þar geta þeir stutt hugmyndirnar eða hafnað þeim og skrifað rök með eða á móti.
Þær hugmyndir sem fá mestan stuðning borgarbúa verða skoðaðar og kostnaðarmetnar af starfsfólki á fagsviðum borgarinnar. Hverfaráð Reykjavíkur munu síðan velja allt að 26 verkefni fyrir hvert hverfi sem íbúar munu greiða atkvæði um í rafrænum kosningum sem munu fara fram 8.-13. mars nk.
Allir sem náð hafa 16 ára aldri geta tekið þátt í kosningunum með rafrænu auðkenni. Niðurstaðan verður bindandi.
Yfir 4.000 notendur eru nú skráðir á Betri Reykjavík og hefur þeim fjölgað um nær 1.000 frá áramótum.
Komdu þinni hugmynd á framfæri á samráðsvefnum Betri Reykjavík.
Yfirlit yfir fjölda notenda á samráðsvefnum Betri Reykjavík 2.-20. janúar 2012 (pdf).