Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hverfastöðvar og símaver á snjóvaktinni

20.01.2012

Upplestur á frétt 

Hverfastöðvar og símaver Reykjavíkurborgar verða með vaktir yfir helgina milli kl. 10:30 – 15:00 bæði laugardag og sunnudag.  Íbúar geta sótt sand og salt á hverfastöðvarnar og símaver veitir upplýsingar og tekur við ábendingum í síma 411 11 11. Í nótt klukkan 4:00 verða snjóruðningstækin ræst bæði fyrir umferðargötur og göngustíga.

Snjóruðningstæki hafa verið sleitulaust á ferðinni í dag og verða á götunum fram eftir kvöldi. Vélar hafa verið sendar í húsagötur eftir þörfum. Tækjaflotinn verður svo ræstur á ný klukkan fjögur í nótt, aðfararnótt laugardags.

Alla vikuna hafa íbúar sótt sér salt og sand á hverfastöðvarnar og til að mæta þörfinni verða hverfastöðvar við Njarðargötu, Flókagötu, Jafnasel og Stórhöfða  opnar á laugardag og sunnudag kl. 10:30 – 15:00.   Sjá staðsetningu hverfastöðvanna 

Símaverið kemur ábendingum um snjóhreinsun með skilvirkum hætti áfram til Framkvæmda- og eignasviðs. Notuð er veflausn sem tengd er verkbeiðnakerfi sviðsins og tryggir það gott utanumhald og yfirsýn. Tekið er við ábendingum í síma 411 11 11 og einnig tölvupósti á netfangið upplysingar@reykjavik.is  en netfangið er stöðugt vaktað af símaverinu.