Glæsileg lokahátíð Reykjavíkurleikanna í Laugardalshöll
20.01.2012
Upplestur á frétt 
Reykjavíkurleikarnir sem fram fóru um helgina gengu afskaplega vel en um 2.400 íþróttamenn úr 16 íþróttagreinum tóku þátt, þar af um 400 erlendir gestir. Íþróttafólk í öllum greinum náði frábærum árangri í keppni helgarinnar og sett voru tugir íslands- og mótsmeta. Haldin var glæsilegi lokahátíð í Laugardalshöll í gærkvöldi þar sem Páll Óskar Hjálmtýsson skemmti gestum. Einn karl og ein kona í hverri íþróttagrein voru verðlaunuð sérstaklega fyrir árangurinn um helgina. Um var að ræða sigurvegara í hverri grein fyrir sig eða stigahæstu keppendurnar ef um margar keppnisgreinar var að ræða. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu leikana www.rig.is og myndir og fleira á facebooksíðu Reykjavíkurleikanna