Snjóhreinsun gengur vel í öllum hverfum
24.01.2012
Upplestur á frétt 
Snjóruðningstæki voru ræst í nótt klukkan fjögur og send á allar stofnæðar, í húsagötur og gönguleiðir að biðstöðvum strætó. Einnig er snjór ruddur við skóla, leikskóla, sundlaugar og aðrar stofnanir borgarinnar.
Snjódýptin eftir ofankomuna í nótt var orðin um 15-20 sm og þurfti því að fara í verkið af krafti. Vel hefur gengið að halda leiðum opnum og var Guðni Hannesson stjórnandi á snjóvaktinni ánægður með gang mála. „Það gengur vel að vinna þennan snjó. Hann er aðeins blautur og flyst því vel undan.“ Nú í morgun voru 82 starfsmenn Reykjavíkurborgar og verktaka á hennar vegum við störf og höfðu þeir 54 tæki til afnota. Fleiri tæki bætast við er líður á daginn.
Unnið hefur verið um alla borg og áhersla lögð á að verkið gangi eins hratt og örugglega og kostur er. Eins og gefur að skilja myndast snjóruðningar og eru íbúar beðnir um að sýna því skilning og opna leiðir sjálfir frá sínum heimkeyrslum.
Símaver Reykjavíkurborgar tekur við ábendingum um snjóhreinsun og kemur þeim með skilvirkum hætti áfram til Framkvæmda- og eignasviðs. Notuð er veflausn sem tengd er verkbeiðnakerfi sviðsins og tryggir það gott utanumhald og yfirsýn. Tekið er við ábendingum í síma 411 11 11 og einnig tölvupósti á netfangið upplysingar@reykjavik.is en netfangið er stöðugt vaktað af símaverinu.
Nánari upplýsingar um snjóhreinsun og hálkueyðingu.