Unnið fram á kvöld við snjóhreinsun
25.01.2012
Upplestur á frétt 
Snjó hefur kyngt niður í Reykjavík í dag og verður fram eftir kvöldi við snjóhreinsun. Í samræmi við viðbragðáætlanir Reykjavíkurborgar verður svo farið af stað klukkan fjögur í nótt á helstu umferðaræðar og gönguleiðir, einkum þær sem liggja að biðstöðvum strætó. Einnig verður snjó rutt af bílastæðum og gönguleiðum við skóla, leikskóla, sundlaugar og aðrar stofnanir borgarinnar.
Í dag hafa um 80 starfsmenn Reykjavíkurborgar og verktaka á hennar vegum unnið við snjóhreinsun og hálkuvarnir og hafa þeir haft yfir 50 tæki til afnota. Lítillega bættist við tækjaflotann í dag og veitti ekki af. Þessi fjöldi telur ekki með mannskap hjá Vegagerðinni sem er með vakt allan sólarhringinn á stofnbrautum.
Vel haldið utan um ábendingar íbúa
Unnið er samkvæmt forgangsáætlun jafnframt því sem brugðist er við ábendingum íbúa. Tekið er við ábendingum frá íbúum um snjóhreinsun í síma 411 11 11 og á netfangið upplysingar@reykjavik.is. Símaver Reykjavíkurborgar kemur ábendingum með skilvirkum hætti til Framkvæmda- og eignasviðs.
Fjöldi ábendinga í dag var vel á þriðja hundrað og varða þær flestar snjóruðning í tiltekinni götu eða bílastæði. Nokkrar ábendingar lúta að snjóhreinsun á bílastæðum við fjölbýlishús, en rétt er að árétta að slíkt er í verkahring húsfélagsins og íbúa. Nokkrir hafa hringt til að hrósa starfsmönnum í snjóruðningi fyrir vel unnin störf og hefur þeim „ábendingum“ einnig verið komið til skila.
Illa staðsettir bílar geta tafið fyrir
Ökumenn eru beðnir um leggja bílum sínum þannig að þeir séu ekki fyrir snjóruðningstækjum. Illa staðsettir bílar hafa tafið hreinsunarstarf og hafa snjóruðningstæki þurft frá að hverfa eða skilja götuna eftir hálfrudda.
Fulltrúar Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu hafa farið yfir öryggisþætti með lögreglu, slökkviliði og Neyðarlínunni. Beiðnir frá viðbragðsaðilum fá sérstakan forgang hjá þeim sem stýra snjóhreinsuninni.
Nánari upplýsingar um snjóhreinsun og hálkueyðingu