Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Skáklistin blómstrar í Seljaborg

26.01.2012

Upplestur á frétt 

Skáklistin hefur löngum skipað stóran sess í starfsemi leikskólans Seljaborgar. Á degi skáklistarinnar 26. janúar var efnt til skákmóts við nemendur í Ölduselsskóla og kom stórmeistarinn Jóhann Hjartarson í heimsókn og tefldi fjöltefli við börnin.

Börnin í Seljaborg hafa mikinn áhuga á skákíþróttinni og þótti þeim því sjálfsagt að taka þátt í skákdeginum sem haldinn er hátíðlegur í tilefni af afmælisdegi fyrsta stórmeistara Íslendinga, Friðriks Ólafssonar. Gamlir Seljaborgarnemendur og skáksnillingar sem nú eru komnir í grunnskóla var boðið til skákmótsins;  þeim Aroni, Baltasar, Birgi Loga, Brynjari, Helga Val og Óskari ásamt fjórum öðrum drengjum sem einnig eru í skákliði Ölduselsskóla. Það lið stóð sig afar vel á jólaskákmóti Taflfélags Reykjavíkur og skóla- og frístundasviðs fyrir nokkrum vikum.

Þegar skákmóti barnanna í Seljaborg lauk tefldi stórmeistarinn Jóhann Hjartarson fjöltefli við börnin og stóðu þau sig ótrúlega vel á móti þessum sterka andstæðingi. Jóhann fræddi einnig börnin um mikilvægi skákíþróttarinnar og hvatti þau til að halda áfram að tefla, því í skák eins og öllu öðru skapar æfingin meistarann. 

Meira um skákdaginn á www.skakdagurinn.blog.is