Yfir hundrað starfsmenn við snjóhreinsun
26.01.2012
Upplestur á frétt 
Unnið er að snjóhreinsun með öllum tiltækum mannskap og tækjum í borginni í samræmi við viðbragðáætlanir Reykjavíkurborgar. Starfsmenn sem vinna við að halda götum í Reykjavík opnum og greiðfærum eru yfir hundrað talsins og hafa ekki verið fleiri í vetur. Í dag vinna 94 starfsmenn Reykjavíkurborgar og verktaka á hennar vegum með beinum hætti við snjóhreinsun og hálkuvarnir og hafa þeir 66 tæki til afnota. Þessi fjöldi telur ekki með mannskap hjá Vegagerðinni sem er með vakt allan sólarhringinn á stofnbrautum. Þá eru einnig ótaldir starfsmenn í símaveri og aðrir í bakvinnslu og stjórnun.
Allar stofnleiðir og helstu umferðargötur eru vel færar og unnið er í húsagötum í öllum hverfum. Unnið verður fram eftir kvöldi eins og að undanförnu. Starfsmenn hafa átt langa daga við ruðningsstörfin og hafa þeir oft undanfarnar vikur farið á byrjunarreit í þessu umfangsmikla verkefni. Eftir því sem hefur liðið á daginn breikka akstursleiðir og fleiri húsagötur verða greiðfærar. Ekki er hægt að forðast snjóruðninga við heimkeyrslur og eru íbúar beðnir um að sýna því skilning.
Snjóblásarar hafa gengið samfellt sólarhringum saman og vinna starfsmenn við þá á vöktum. Halldór Ólafsson sem stjórnar snjóvaktinni er ánægður með blásarana því með þeim er hægt að kasta snjónum vel út fyrir götuna í þétta hryggi sem ekki blæs úr í næstu skafhríð. „Við þurfum ekki að eiga við þann snjó aftur“ , segir Halldór „Fyrr eru nú refir farnir að fjúka en það gerist“.
Illa staðsettir bílar tefja fyrir snjóhreinsun
Halldór hvetur ökumenn til að leggja bílum sínum þannig að þeir séu ekki fyrir snjóruðningstækjum. Illa staðsettir bílar hafa tafið hreinsunarstarf og hafa snjóruðningstæki þurft frá að hverfa eða skilja götuna eftir hálfrudda. Í gærkvöldi taldi Halldór 37 bíla sem stóðu við Reynisvatnsveg og segir það sig sjálft að ekki flýtir það fyrir snjóruðningi.
Fulltrúar Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu eru í góðu sambandi við lögreglu, slökkvilið og Neyðarlínuna vegna öryggismála. Beiðnir frá viðbragðsaðilum fá sérstakan forgang hjá þeim sem stýra snjóhreinsuninni.
Vel haldið utan um ábendingar íbúa
Unnið er samkvæmt forgangsáætlun jafnframt því sem brugðist er við ábendingum íbúa. Tekið er við ábendingum frá íbúum um snjóhreinsun í síma 411 11 11 og á netfangið upplysingar@reykjavik.is. Símaver Reykjavíkurborgar kemur ábendingum með skilvirkum hætti til Framkvæmda- og eignasviðs.
Þegar símaver lokaði í dag höfðu 560 ábendingar verið skráðar. Flestar varða þær snjóruðning í tiltekinni götu eða bílastæði. Nokkrar ábendingar lúta að snjóhreinsun á bílastæðum við fjölbýlishús og vert að árétta að slíkt er í verkahring húsfélagsins og íbúa.