Persónur úr Njálssögu: sýning og fyrirlestrar
27.01.2012
Upplestur á frétt 
Nú stendur yfir sýning í Félagsmiðstöðinni Aflagranda 40 á myndum Þórhildar Jónsdóttur af persónum úr Njálssögu. Myndirnar vann hún í samstarfi við sögumanninn Bjarna E. Sigurðsson sem lýsti persónunum fyrir henni í gegnum síma. Sýningin mun standa út febrúar og eru allir velkomnir að koma og skoða. Fyrstu þrjá mánudagana í febrúar mun Bjarni síðan flytja erindi um Njálu. Þann 6. febrúar fjallar hann um ástir í Njálu, þann 13. febrúar um Brennuflosa og þann 20. febrúar um Hallgerði Langbrók. Fyrirlestrarnir hefjast kl. 13.30 og svo er kaffihlé kl. 14.30 og eftir það er opið fyrir fyrirspurnir.
Þórhildur Jónsdóttir er fædd að Breiðabólstað í Fljótshlíð vorið 1952. Hún lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1972 og hefur síðan starfað við grafíska hönnun. Hefur síðustu tuttugu og fimm árin unnið á eigin stofu – Auglýsingastofu Þórhildar.
Verið öll hjartanlega velkomin