Sandi dreift á hálku um alla borg
28.01.2012
Upplestur á frétt 
Víða er hált í Reykjavík og hafa starfsmenn Reykjavíkurborgar og verktaka á hennar vegum verið á ferðinni við söndun á göngustígum frá klukkan fjögur í nótt. Klukkan átta hófst svo vinna við dreifa sandi á götur þar sem þörf er á. Til þess verks eru notaðir stóru trukkarnir sem alla jafna eru í saltdreifingunni. Á göngustígunum verða traktorar og önnur minni tæki í ruðningi og söndum.
Farið verður skipulega yfir borgina og eru tæki í öllum hverfum. Víða verða stóru tækin að bakka inn botnlanga og einnig er seinlegt yfirferðar vegna þrengsla. Í þrengstu götum er notaðir minni bílar með sanddreifa.
Allar meginleiðir í borginni eru greiðar og víða auðar. Unnið er við snjóhreinsun í dag á Esjumelum og snjóblásarar eru notaðir í Úlfarsfelli við að breikka akstursleiðir.
Símaver og hverfastöðvar með opið í dag klukkan 10 - 15
Reykjavíkurborg vill með aðgerðunum til hálkuvarna tryggja öryggi vegfarenda og eru íbúar hvattir til að fara varlega. Íbúum stendur til boða að sækja sér sand og salt á hverfastöðvarnar við Njarðargötu, Flókagötu, Jafnasel og Stórhöfða. Þar verður opið kl. 10 - 15. Á sama tíma verður símaver Reykjavíkurborgar með vakt í síma 411 11 11. Einnig er netfangið upplysingar@reykjavik.is vaktað. Tekið er við ábendingum um hálku og snjóhreinsun og er unnið úr þeim eins fljótt og kostur er.