Jólatrén nýtt upp til agna
31.01.2012
Upplestur á frétt 
Reykvíkingar hafa nú upp til hópa losað sig við jólatrén sem prýddu stofur þeirra yfir hátíðarnar. Samkvæmt upplýsingum frá SORPU eru skil á jólatrjám svipuð og undanfarin ár og fá tré skilin eftir á víðavangi.
Reykjavíkurborg hætti að hirða jólatré við lóðarmörk árið 2008. Gripið var til þess ráðs í sparnaðarskyni eftir hrun en áður hirtu starfsmenn borgarinnar trén.
Hjá Sorpu kemur fram að skil á trjám í ár eru svipuð og undanfarin ár og borgarbúar duglegir að koma þeim í endurvinnslu. Gámafélagið hirti tré fyrir sanngjarnt verð en nýtt tré er gróðursett fyrir hvert hirt tré samkvæmt stefnunni Tré fyrir tré. Íþróttafélögin söfnuðu einnig jólatrjám gegn vægu gjaldi.
Samkvæmt upplýsingum frá hverfisstöðvum borgarinnar hefur lítið verið um tré á víðavangi innan borgarmarkanna. Trén eru öll endurunnin. Þau eru kurluð og notuð sem þekjulag. Ekki er talið ráðlegt að nýta trén til moltugerðar þar sem talsverður hluti þeirra er innfluttur og getur borið sýkingar. Ef skógrækt dafnar áfram og íslensk tré verða ráðandi á markaði býður það upp á enn frekari endurvinnslumöguleika. Oft er synd að kasta blómlegu tré sem stóð ljósum prýtt yfir hátíðarnar og gott að vita til þess að það eigi sér framhaldslíf.
Nú stendur yfir sýning í Ráðhúsi Reykjavíkur á gripum sem handverksfólk vann úr Oslóartrénu 2010. Þar eru til sýnis bæði tálgaðir og renndir list- og nytjamunir sem allir eiga það sameiginlegt að hafa verið búnir til úr þessu þekkta tré. Einnig hefur verið safnað fræjum úr könglum Oslóartrésins og þau gróðursett í útmörk borgarinnar.
Svo vel tókst til hjá handverksfólkinu að rétt þykir að nýta tréð frá síðustu jólum sem og um ókomin ár til svipaðra hluta.