Samstarf og lestrarhvetjandi verkefni
02.02.2012
Upplestur á frétt 
Við úthlutun þróunar- og samstarfsstyrkja leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs á næsta skólaári verður haft að leiðarljósi að styrkja verkefni sem miða að auknu samstarfi og samþættingu verkefna þvert á skólastig, svo og læsi í víðum skilningi. Jafnframt verði horft til verkefna sem styrkja Reykjavík í sessi sem bókmenntaborg UNESCO. Skóla- og frístundaráð samþykkti þetta á fundi sínum 1. febrúar. Tveir megináhersluþættir verða hafðir til hliðsjónar við úthlutun:
- Samstarf og samþætting verkefna í leikskóla, grunnskóla og frístund
- Læsi í víðum skilningi, lestrarhvetjandi verkefni og annað sem styrkir Reykjavík í sessi sem bókmenntaborg UNESCO.
Meira um styrki skóla- og frístundaráðs