Reykjavíkurborg leggur til breytingu á fasteignalögum um hesthús
02.02.2012
Upplestur á frétt 
Skrifstofustjóri borgarstjórnar hefur sent bréf til alþingis vegna úrskurðar yfirfasteignamatsnefndar um að hesthús skuli skattlögð sem atvinnuhúsnæði en ekki í flokki með íbúðarhúsnæði eins og verið hefur í Reykjavík til þessa. Úrskurðurinn þýðir að fasteignaskattur á meðalstórt hesthús hækkar úr 16.265 kr. í 134.185 kr. Bréfið er sent í framhaldi af umfjöllun borgarráðs um málið 12. janúar sl.
Í bréfinu er óskað eftir því að Alþingi breyti lögunum þannig að hesthús þaðan sem ekki er rekin atvinnustarfsemi muni færast að nýju í a-lið en undir hann heyrir m.a. íbúðarhúsnæði og sumarbústaðir. Ef lagabreytingin verður að veruleika munu gjöldin lækka aftur hjá þeim hesthúsaeigendum sem ekki reka atvinnustarfsemi í húsum sínum. Aðeins alþingi getur breytt lögunum.
Eins og fram hefur komið í fréttum er það mat borgarlögmanns að Reykjavíkurborg sé skylt að innheimta fasteignagjöld af hesthúsum samkvæmt úrskurðinum.
Forsagan að málinu er sú að árið 2010 úrskurðaði yfirfasteignamatsnefnd í máli hesthúsaeigenda á Selfossi gegn sveitarfélaginu að hesthús/fasteignir sem eru á deiliskipulögðu hesthúsasvæði innan þéttbýlis skyldu skattlögð sem atvinnuhúsnæði. Sveitarfélagið hafði þá fært hesthús í þéttbýli í c-lið álagningar og komst yfirfasteignamatsnefnd að því að það væri rétt ákvörðun.
Sveitarfélögum er skylt samkvæmt lögum að innheimta fasteignaskatta og skiptast þeir í þrjá liði. Í a-lið er m.a. íbúðarhúsnæði og sumarbústaðir, í b-lið er opinbert húsnæði en í c-lið er atvinnuhúsnæði.
Úrskurður yfirfasteignamatsnefndar var alveg ótvíræður og er sveitarfélögum því skylt að flokka hesthús undir c-lið sem atvinnuhúsnæði.
Í bréfi skrifstofustjóra borgarstjórnar segir m.a.: „Það er skoðun Reykjavíkurborgar að eðlilegra teljist að hesthús þaðan sem ekki er rekin atvinnustarfsemi; svo sem hestaleiga, sé með skýrum hætti skattflokkuð með a-lið 3. mgr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 þar sem m.a. sumarbústaðir eru skattflokkaðir. Talið er að í slíkum hesthúsum fari að meginstefnu fram frístundastarf og falla því sambærileg rök með slíkri skattflokkun og gildir um sumarbústaði.“
Reykjavíkurborg leggur til að lagaákvæðið um a-lið verði svohljóðandi eftir breytingu:
„Íbúðir og íbúðarhús ásamt lóðarréttindum, hesthús þaðan sem ekki er rekin atvinnustarfsemi, erfðafestulönd í dreifbýli og jarðeignir, útihús og mannvirki á bújörðum, sem tengd eru landbúnaði, öll hlunnindi og sumarbústaðir ásamt lóðarréttindum.“