Betri Reykjavík hlaut tvenn verðlaun á Íslensku vefverðlaununum 2012
03.02.2012
Upplestur á frétt 
Betri Reykjavík var valinn frumlegasti vefurinn og athyglisverðasti vefurinn á Íslensku vefverðlaununum sem veitt voru í dag. Orkusalan.is var valinn besti íslenski vefurinn. Samtök vefiðnaðarins, SVEF, standa að verðlaununum sem voru nú veitt í ellefta sinn og var athöfnin haldin í Tjarnarbíói. Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða. Veittar eru viðurkenningar fyrir framúrskarandi vefi í 11 flokkum. Alls bárust 100 tilnefningar til verðlaunanna og dómnefnd stillti upp í tilnefningar sem félagsmenn kusu síðan um. Jón Gnarr, borgarstjóri Reykavíkur, afhenti verðlaunin og var að vonum ánægður með þá viðurkenningu sem Betri Reykjavík hlaut. Hann sagði að verðlaunin vera mikilvæg og fælu í sér hvatningu um að halda áfram á réttri braut með samráðsvefinn Betri Reykjavík sem stuðlar að auknu íbúalýðræði.
VERÐLAUNAHAFAR ÍSLENSKU VEFVERÐLAUNANNA 2011:
Besti íslenski vefurinn: Orkusalan.is
Athyglisverðast vefurinn að mati félagsmanna SVEF: BetriReykjavik.is
Besta útlit og viðmót: Orkusalan.is
Frumlegasti vefurinn: BetriReykjavik.is
Besta herferðin: Icelandair.is/uppahaldsborgin
Besti farsímavefurinn: m3.siminn.is/airwaves
Bestu efnistök, blogg og myndefni: SnoopAround.com
Besti afþreyingar og fréttavefurinn: ruv.is
Besti þjónustu og upplýsingavefurinn: Landsbankinn.is
Besti sölu- og kynningarvefur með fleiri en 50 starfsmenn: Landsbankinn.is
Besti sölu- og kynningarvefurinn með færri en 50 starfsmenn: Orkusalan.is
Dómnefnd skipuðu Díana Dögg Víglundsdóttir, Soffía Haraldsdóttir, Jökull Sólberg Auðunsson, Jóna Dögg Sveinbjörnsdóttir, Samúel Jónasson, Erling Ormar Vignisson, Halldór Andri Bjarnason, Ólafur Sverrir Kjartansson, Helgi Pjetur Jóhannsson, Sævar Örn Sævarsson og Þórhallur Helgason.